25.5.2007 | 17:22
Seinna kemur aldrei...
Jæja það þýðir víst lítið annað en að skrifa eitthvað fyrst maður er búinn að opna bloggsíðu. Er búinn að vera í fríi í 2 daga og byrja að vinna í kvöld og verð að vinna alla helgina. Hefði helst viljað vera á Kirkjubæjarklaustri og taka þátt í enduro keppni þar. En það verður bara að biða betri tíma.
Það var búið að ákveða fyrir fríið að fara með Land Roverinn í viðgerð til góðra manna í Berufirði. Unnar Birkir var orðinn spenntur fyrir ferðinni, en ábúendur voru ekki heima þennan dag og Unnar lagðist í pest. Gærdagurinn fór því að mestu í að horfa á Tomma lest og perla. Inga kom heim í hádeginu því ég þurfti að fara á fundi í vinnunni. Þegar heim var komið var grillað og Unnar og Kristrún komu í mat. (tengdó)
Og í morgun voru litaðar myndir af Bubba byggir og borðað popp eftir að hafa borðað Cherios og jógúst í morgunmat. Við borðuðum svo Þorramat í hádeginu með kartöflumús,rófustöppu og laufabrauði. Klæddum okkur því næst vel upp og fórum í búð. Keyptum uppþvottalaug,hafðfisk, hákarl og snakk. Og smá dót, litla dráttarvél með 3 kerrum. Unnar var mjög sáttur við þetta og við héldum áfram leið upp í Bílanaust. N1 fyrirgefið. (get alls ekki vanist þessu) Þar sá Unnar aldeilis helling af mótorhjóladóti. Hann gekk um og sagði mér hvað hann ætlaði að fá sér þegar hann yrði stór.
Svo fór hann að benda á það sem hann vildi kaupa núna, ég útskýrði fyrir honum að hann væri nú nýbúinn að fá dót og hann gæti fengið þetta einhverntíman seinna.
Þá brást minn maður illa við og hvæsti út úr sér : En seinna kemur aldrei..
Og það var stór skeifa sem fylgdi í kjölfarið.
Maður ætti kannski að segja sjaldnar:seinna ,og muna hvenar sagt hefur verið seinna.
læt þetta nægja núna.
kv.Atli
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.